Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
Myndamen
4.9.2008 | 17:25
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á ljósmyndum, skartgripagerð, hönnun..og já bara öllu á milli himins og jarðar : ). Fyrir ekki svo löngu síðan ákvað ég að sameina þessi áhugamál og voila! ljósmyndaskartgripirnir mínir urðu til.
Ég á 2 yndisleg börn sem hafa í gegnum tíðina verið mikið mynduð, og síðan ég smíðaði fyrsta menið ( þar sem ég skartaði þeim að sjálfsögðu ) hef ég fengið það mikil jákvæð og skemmtileg viðbrögð, að ég ákvað að kanna hvort að fleiri vildu eignast svona grip.
Hugmyndin er sú að þeir sem hafa áhuga sendi mér myndir á; myndamen@gmail.com sem ég síðan vinn að óskum þeirra.
Þetta getur verið mynd af einhverjum/einhverju sem er viðkomandi kær og er alls ekki bundið við ljósmyndir ( en verður þó að vera á tölvutæki formi ) þetta getur því þessvegna verið grafísk mynd, lítið listaverk...já, bara hvað sem er : )
Ljósmyndina vinn ég svo og geri svarthvíta, brúntóna eða í lit, allt eftir smekk viðkomandi.
Myndamenið með venjulegri silfurkeðju kostar 3.500
Myndirnar hér fyrir neðan eru hugsaðar sem hugmyndabanki. Eins og er ætla ég mér eingöngu að smíða menin ( ég er í námi og verð að sjá hvernig tíminn nýtist mér : )
En það er á döfunni að bjóða upp á ýmislegt eins og t.d perluarmband ( eins og á myndinni ), perlufestar og ýmislegt fleira.
Til glöggvunar þá eru myndamenin unnin úr silfurtini og gleri.
Hérna eru svo smá leiðbeiningar;
Til að myndin njóti sín, þá er um að gera að velja skýra og góða mynd af viðfangsefninu. Portrettmyndir henta hvað best.
Myndin þarf helst að vera tekin í "portrett" en ekki "landscape", semsagt frekar á lóðréttu, en láréttu formi.
Ef þú ert ekki viss hvort myndin hentar, þá er um að gera að hafa samband og við finnum út úr því í sameiningu : )
Annað:
Afhendingartími er 5 dagar...svona að öllu jöfnu
Takk fyrir innlitið!
Erla
Menning og listir | Breytt 2.12.2008 kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)